Orlofseignir.is - Íbúðir á Spáni, Frakklandi, Florida, Danmörku, Ungverjalandi, Alicante, USA - Hús í litlu fjallaþorpi í Suður Frakklandi Lumar þú á ábendingu?







  • •select date

    •select date


Umsögn fyrir Hús í litlu fjallaþorpi í Suður Frakklandi

 

Mas Carbades

Stjörnugjöf :

Hér hefur farið mjög vel um okkur.......... Allir hér í þorpinu eru mjög vingjarnlegir.....Mælum eindregið með veitingastaðnum Sire de Cabaret í Roquefere, froskalappir í hvítlauk eru góðir einnig öndin í hunangspiparsósu.... Fórum í vínsmökkun á bóndabæ rétt hjá Lagrasse, sem heitir Villamagne. Mælum með að fólk skoði hellana í Limousis. Einnig mjög gaman að fara að Lac Montagne...... Þökkum kærlega fyrir afnot af góðu og vel útbúnu húsi.

 

Mas Carbades

Stjörnugjöf :

Við undirrituð höfum dvalið í Mas Carbades í þessu fína húsi í þrjár vikur og notið þess í ríkum mæli. Náttúran hér í kring er alveg frábær......... La Cité er mjög merkilegur og áhugaverður staður........ Þá er mjög gaman að koma til Andorra, þrátt fyrir verslunarbrjálæðið sem þar ríkir. Leiðin þangað upp eftir í gegnum Limoux, Quillan og Aix-Les Thermes er stórkostleg. Albi er mikil menningarborg sem vert er að eyða tíma í að heimsækja og skoða safn Lautrecs og sigla á ánni. Þá var einnig mjög gaman að heimsækja koparbæinn Durfort. Þar er veitingastaður sem óhætt er að mæla með sem "gormangarstað", en hann heitir La Peyré......."

 

Húsið kom okkur skemmtilega á óvart...

Stjörnugjöf :

Húsið kom okkur skemmtilega á óvart......... allt er fært í golfi, sem við sóttum til Carcassonne, Mazamet og Cap d´agde. Allir vellirnir eru mjög fallegir. Konurnar fóru í göngutúra um svæðið hér í nágrenninu, skoðuðu kirkjugarðinn og kirkjuna, svæðið er allt afar athyglisvert............ Fórum til Figueres á Spáni sem tekur tvær og hálfa klukkustun eftir hraðbraut, en eina klukkustund lengur, en mun skemmtilegri leið meðfram ströndinni. Ókum einnig gegnum hrikalega fallegt háfjallalandslag til Andorra. Þar var 5 stiga frost og fólk á skíðum...... Mælum með veitingastað í Carcassonne sem heitir L´écurie (gamla hesthúsið) og hellunum La Grotte de Limousis, sem eru undurfallegir.

 

  • Athugið: Reitir merktir með * eru nauðsynlegir
  •  





Orlofseignir hafa aðgang að fjölda eigna um allan heim, ef þú sérð ekki eignina á vefnum okkar, óskaðu eftir eign og við höfum samband þegar að rétta eignin er fundin.