Paradís í frönsku smáþorpi! Húsið er meira en 300 ára og er fyrir fólk sem vill fara 100 til 200 ár aftur í tímann og njóta lífsins í litlu sveitaþorpi, þar sem tíminn stendur kyrr.
Þetta er íbúð- vinnustofa í smáþorpi sem er mjög miðsvæðis. Tilvalið fyrir fólk sem sinnir sköpunarstörfum, fræðistörfum eða þeim sem þurfa góða hvíld. Einnig kjörið fyrir þá sem vilja bara njóta og kynnast Frakklandi eins og það er, blíða Frakklandi eins og Frakkar segja sjálfir: "Douce France". Sillé Plage er aðeins í 5 min akstri frá húsinu og er útivistarsvæði með strönd, veitingarstöðum og fleiru ....algjör perla!
Lest fer frá Charles de Gaulle flugvellinum í París beint til Le Mans og tekur það 55 min. Sjá:http://www.bonjourlafrance.com/trains_Paris_CDG_Airport_Train_Station_to_Le_Mans_Train_Station_16_95.aspx
Annars fer lest frá Montparnasse til Le Mans, tekur 55min. Bílaleigubíl er síðan hægt að fá á lestarstöðinni í Le Mans.
Nú svo er hægt að leigja bíl á flugvellinum, 208 km.
Húsið:
Fyrsta hæð:
Setu- og borðstofa, eldhús og svefnaðstaða fyrir tvo (stórt rúm). Svefnherbergin eru opin og því kölluð "svefnaðstaða". Bakgarður, geymsla og þvottahús.
Eldhúsið er með góðum ísskáp, með klaka og vatni, frábærri eldavél sem er bæði gas og rafmagn og því yndislegt að elda eftir frönskum uppskriftum sem fylgja húsinu.Þvottavél er í tengibyggingu milli húss og bakgarðs og er það þvottahúsið og geymslan.
Í setu- og borðstofu er arinn sem hitar vel og lítil hljómflutningstæki fyrir CD kasettur og útvarp.
Í bakgarðinum er bekkur, borð og stólar ...einnig garður aðeins frá húsinu með borði og stólum
Efri hæð:
Tvö vinnurými, annað fyrir skriftir og hugleiðingar en það stærra fyrir önnur verkefni. Sjónvarp og svefnaðstaða fyrir tvo, klósett og sturta.
Internet og sjónvarp.