Níu fullbúnar íbúðir í skammtímaleigu á góðum stað í Kaupmannahöfn. Leigutími er allt frá þremur gistinóttum upp í mánuð í senn.
Um er að ræða tvær þakíbúðir, tvær íbúðir á fimmtu hæð, eina á fjórðu hæð, eina á þriðju hæð, eina á annarri hæð og tvær á jarðhæð í 6 hæða íbúðarhúsnæði á Flensborggade 39 í "Vesterbro" hverfinu. Hverfið er af mörgum talið með betri staðsetningum á Kaupmannahafnarsvæðinu. Alls eru 12 íbúðir í húsinu sem allt er í eigu fyrirtækisins. Íbúðirnar sem og húsið sjálft var allt endurnýjað árið 2007.
Þakíbúðirnar tvær eru 79m2 að stærð hvor. Tvö svefnherbergi eru í íbúðunum með tvíbreiðum rúmum og svefnsófi er í stofu. Þakíbúðirnar eru með 6m2 svölum með hitara. Engin lyfta er í húsinu. Hinar íbúðirnar eru 89m2 með tveimur svefnherbergjum með tvíbreiðum rúmum eða tveimur einbreiðum og svefnsófi er í stofu í flestum íbúðunum.
Íbúðirnar eru staðsettar miðsvæðis í Kaupmannahöfn þar sem stutt er í alla þjónustu og afþreyingu. Það tekur um 10-15 mínútur að fara fótgangandi í t.d. Tívoli, á Aðalbrautarstöðina, á Strikið, í Dýragarðinn, Listasafn Danmerkur, í stærsta þrívíddarbíó heims: Tycho Brahe Planetarium og í nýjustu verslunarmiðstöðina, Fisketorvet. Almenningssamgöngur eru einnig góðar.
Íbúðin sem hér er um ræðir er á fyrstu hæð (ekki jarðhæð). Hún er með tveimur svefnherbergjum. Í öðru svefnherberginu er tvíbreitt rúm en í hinu eru tvö einbreið rúm. Svefnsófi er í stofu og hægt er að loka stofu af líkt og herbergi. Lítið baðherbergi með sturtu sem og þvottavél/þurrkara. Íbúðin er með fullbúið eldhús með öllum nauðsynlegum áhöldum. Sængurver/koddaver/lök og handklæði fylgja íbúðinni.