SÓLVELLIR - EINBÝLISHÚS:
Til leigu frábært einbýlishús í Lomas de Cabo Roig með svefnplássi fyrir 8 manns. Ekki er nema 10 mín akstur inní Torrevieja, frábærir golfvellir og stutt á ströndina - sjá nánar á korti hér fyrir ofan.
Í stofu er sjónvarp, DVD spilari og gervihnattasjónvarp með fjölda sjónvarpsrása einnig er sjónvarpsflakkari með úrvali af bíómyndum, fullt af barnaefni á íslensku og nokkrir góðir íslenskir þættir, einnig er útvarp með CD spilara.
Borðstofuborðið er með 2 stækkunarplötum svo það er stækkanlegt í 8 manna borð, 8 stólar eru í húsinu og barnastóll. Mjög góður tvíbreiður svefnsófi er í stofunni með rúmfatageymslu. Í eldhúsi er stór ísskápur með frystihólfi, uppþvottavél, kaffivél, hraðsuðuketill, brauðrist, örbylgjuofn, pottar og pönnur og öll helstu áhöld til matargerðar, borðbúnaður er fyrir 12 manns. Í húsinu eru 3 svefnherbergi, eitt á fyrstu hæðinni og tvö á annarri hæðinni þau eru með góðum rúmum og sængur og koddar eru fyrir 8 manns, einnig er barnaferðarúm ásamt barnasæng og kodda. Stórir skápar eru í herbergjum á 2. hæð með útdraganlegum skúffum. Snyrting/þvottahús á fyrstu hæð en á annarri hæð er baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu og fallegum innréttingum, gott skápapláss, hárblásari og sléttujárn. Góð afgirt einkalóð er við húsið með frábærri sólbaðsaðstöðu og góðu rými til að borða úti. Sundlaugargarðurinn er í lokuðum og læstum garði á milli húsanna, svo ekki er hætta á að börn hlaupi í burtu. Gengið er beint úr eldhúsinu í sundlaugargarðinn sem er bakvið húsið.
Húsinu fylgir gasgrill, útihúsgögn og sólbekkir.
Greiða þarf 70€ þrifgjald til umsjónarmanns við komu í húsið. Internet tenging kostar 25€.