Viltu ekki vera memm á Facebook? Það gæti margborgað sig.
Torrevieja
Torrevieja er staðsett í um 35 km frá Alicante flugvelli á Costa Blanca strandlengjunni sem er fyrir löngu orðin víðfræg fyrir sínar hvítu strendur.
Fjölmargar ástæður má finna til að heimsækja þetta skemmtilega svæði og má þar meðal annars nefna stærstu saltvatnslón Evrópu, margir sögufrægir staðir og fjöldinn allur af spænskum og alþjóðlegum veitingastöðum.
Torrevieja sem þýðir gamli turn (torre = turn ; vieja = gamall) er einna helst þekkt fyrir tvö náttúruleg og risastór saltvatns lón sem umkringja borgina. Lónin, sem eru þau stærstu í Evrópu og þau önnur stærstu í heimi, hefur verið breytt í þjóðgarð og eru þau vel þess virði að heimsækja. Yfir 250 fuglategundir allstaðar úr heiminum hafa þar viðkomu sína.
Torrevieja er einnig þekkt fyrir marga sögufræga staði frá tímum rómarveldis, einn þeirra er leifarnar af gömlu höfninni "embarcadero romano" sem enn má sjá frá hinum alda gamla varðturni La Mata. Sælkerar ættu líka að finna eitthvað fyrir sitt hæfi en í Torrevieja má, í bland við þjóðlega spænska veitingastaði, einnig finna ítalska, franska, þýska, kínverska, indverska, mexikóska, serpneska og króatíska staði.
Orlofseignir hafa aðgang að fjölda eigna um allan heim, ef þú sérð ekki eignina á vefnum okkar, óskaðu eftir eign og við höfum samband þegar að rétta eignin er fundin.