Viltu ekki vera memm á Facebook? Það gæti margborgað sig.
Menorca
Menorca er bæði minni og rólegri en nágranni sinn Mallorca. Menorca er næst stærst Balearic eyjanna og staðsett einungis 34 km frá Mallorca.
Á Menorca má finna marga fjölskylduvæna staði og á eyjunni eru næstum því jafn margar strendur og á Mallorca og Ibiza til samans. Friðsælir staðir liggja meðfram suðurströndinni en róleg fiskiþorp meðfram norðurströndinni. Í bæjum Menorca má finna upplýsingar um staðbundna ferðamannastaði, strendurnar, söfn, uppákomur , skoðunarferðir, hátíðir og fleira. Íbúafjöldi eyjunar eru um 68.000 og samanborið við nágrannaeyjuna Mallorca er Menorca bæði fámennari og minni. Þetta er eflaust helsta ástæðan fyrir því að fjölskyldur sækja þangað meira. Í gegnum árin hefur Menorca einungis breyst lítillega. Hefur eyjan því lítið orðið fyrir áhrifum þeirrar hefðbundinnar þróunnar annarra ferðamannastaða þar sem uppbygging hefur oft verið hröð og óskipulögð. Menorca er að því leyti enn tiltölulega ósnert paradís.
Orlofseignir hafa aðgang að fjölda eigna um allan heim, ef þú sérð ekki eignina á vefnum okkar, óskaðu eftir eign og við höfum samband þegar að rétta eignin er fundin.