Viltu ekki vera memm á Facebook? Það gæti margborgað sig.
Florida
Flórída eða sólskinsfylkið (e. Sunshine State) er fjórða fjölmennasta fylki Bandaríkjana. Höfuðborg ríkisins er Tallahasse en stæsta borgin er Jacksonville eða stórborgarsvæði Miami, eftir hvernig á það er litið. Aðrar þekktar borgir eru Tampa, Orlando og Fort Lauderdale.
Í fylkinu búa yfir 18 milljónir manna og er það um 170.000 ferkílómetrar að stærð sem gerir það á við meðalstórt land. Flórída er einn þekktasti ferðamanna staður heims en árlega leggja milljónir ferðalanga leið sína þangað. Flórída er einna helst þekkt fyrir sól og strendur, frábæra golfvelli, Everglades þjóðgarðinn og ekki má gleyma hinum geysivinsæla skemmtigarði Disney Land. En Flórída hefur upp á margt annað að bjóða. Í Tallahasse má finna mörg góð söfn ásamt hinni frægu Suwannee á. Þar má einnig finna tækifæri til fiskveiða og hellaköfunar.
Í norðaustur Flórída er borgin Jacksonville en þar hefur PGA (Professional Golf Assocition) m.a. höfuðstöðvar sínar. Golf, veiði, saga og vatnagarðurinn Marineland eru vel þess virði til að heimsækja norðaustur Flórída. Lengra suður í Brevard sýslu finnur þú hina heimsfrægu Daytona strönd ásamt Geimferðamiðstöð Bandaríkjanna NASA. Í Mið Flórída er svo auðvitað Orlando en þar má m.a. finna Disnley World, Universal Studios, Sea World og marga aðra skemmtilega ferðamannastaði. Ekki missa af litlu fallegu bæjunum suður af Orlando eða bæjunum í kringum vötnin til norðurs.
Til vestur liggur Tampa og St. Petersburg fallegar borgir með jafn fallegum ströndum. Í Tamba er Busch Gardens skemmtigarðurinn en aðal aðdráttaraflið er Mexíkó flóinn þar sem má flatmaga má í sólinni allt árið um kring. Það er vel þess virði að gera sér ferð til Suður Flórída og kíkja til Fourt Lauderdale og Miami en einnig ætti enginn að láta Everglades þjóðgarðinn fram hjá sér fara. Að lokum má svo keyra niður til Key West þar sem auðvelt er að eyða deginum í skoðurnarferðum eða bara slaka á og slappa af.
Orlofseignir hafa aðgang að fjölda eigna um allan heim, ef þú sérð ekki eignina á vefnum okkar, óskaðu eftir eign og við höfum samband þegar að rétta eignin er fundin.