Viltu ekki vera memm á Facebook? Það gæti margborgað sig.
Alicante
Alicante er heillandi borg og þekktur fararstaður Íslendinga en borgin er staðsett á hinni frægu Costa Blanca strönd Spánar. Borgin hefur á undanförnum árum breyst úr gömlum bæ í glæsilega borg með nýrri bátahöfn, hreinum ströndum, frábærum söfnum, æðislegum búðum og iðandi næturlífi. Borgin á sér langa sögu og er glæsilegri en margir af þeim stöðum sem sóldýrkendur heimsins leggja leið sína til. Benidorm er í aðeins 20 mínútna fjarlægð en fyrir þá sem vilja komast burt frá strandlífinu tekur það aðeins 90 mínútur að keyra til Valencia. Svo er Barcelona í um fimm klukkustunda fjarlægð. Alicante, með um 330.000 íbúa, höfðar til margra ferðamanna sem vilja taka sér frí frá daglegu amstri, þar sem hægt er að slaka á á fallegum stöndum eða kynna sér þá sögu sem borgin hefur að geyma. Ólíkt öðrum nálægum stöðum eins og Benidorm, hefur Alicante aðskilið sig sem menningarhöfuðborg Costa Blanca strandarinnar.
Helsta kennileiti borginnar, Barbara de Santa kastallinn, sem staðsettur er á Mount Benacantil er einstök heimild umsögu Mára. Þó að Alicante hafi breyst í nýtísku borg á undanförnum árum hefur hún ekki tapað spænskum rótum sínum. Með vingjarnlegum íbúum, hefðbundnum hátíðarhöldum og ferskum sjávarréttum sínum beint úr djúpum Miðjarðarhafsins, býður Alicante upp á rétt jafnvægi fyrir alla sem hana heimsækja.
Orlofseignir hafa aðgang að fjölda eigna um allan heim, ef þú sérð ekki eignina á vefnum okkar, óskaðu eftir eign og við höfum samband þegar að rétta eignin er fundin.